Mikilvægt er að þeir aðilar sem koma að því að skipuleggja og framkvæma viðburði og annað æskulýðsstarf fyrir börn séu meðvitaðir um ábyrgð sína, þekki einkenni ofbeldis og viti hvert skal leita ef grunur vaknar um að barn hafi orðið fyrir ofbeldi.
Samstarfshópur á vegum Barna- og fjölskyldustofu, Embættis landlæknis, Heimili og skóla, Jafnréttisstofu, lögreglunnar, Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, Neyðarlínunnar, SAFT – Fjölmiðlanefndar, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs hefur tekið saman gagnlegt upplýsingabréf.
Í bréfinu má finna fræðsluefni gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, gátlista fyrir ráðningar, leiðbeiningar um öflun og upplýsinga úr sakaskrá og samræmda viðbragðsáætlun æskulýðsstarfs.
Ef smellt er á myndirnar hér að neðan opnast PDF - Skjölin eru bæði á ensku og íslensku.
Nánari upplýsingar veita:
Kristín Skjaldardóttir – samskiptaradgjafi@samskiptaradgjafi.is
Alfa Dröfn Jóhannsdóttir – alfa@samband.is
Barna- og fjölskyldustofa – bofs@bofs.is