Sérfræðingur í forvörnum segir mikilvægt að foreldrar ræði við börn sín um hætturnar sem fylgt geta tálbeituaðferðum. Myndbönd sem sýna ungmenni ganga í skrokk á meintum barnaníðingum eru í dreifingu á samfélagsmiðlum.
Undanfarið hefur verið fjallað um hóp ungmenna sem stundar það að nota tálbeituaðferðir til að lokka til sín meinta barnaníðinga í þeim tilgangi að ganga í skrokk á þeim.
Á föstudag var til dæmis greint frá árás sem átti sér stað á Akranesi í desember þar sem hópur ungmenna réðst á karlmann sem er sagður hafa talið sig vera að fara að hitta stúlku við fermingaraldur þegar ráðist var á hann. Árásin, sem tekin var upp á myndskeið, er sögð hafa verið hrottaleg og hafa nokkrir verið handteknir og yfirheyrðir vegna málsins.
Sérfræðingur í foreldrastarfi og forvörnum hjá Heimili- og skóla segir tilgang árásanna að einhverju leyti snúa að því að búa til efni til birtingar á samfélagsmiðlum.
„Við erum að sjá þetta úti um allan heim. Þetta er einhver samfélagsmiðlasýki þar sem krakkar eða ungmenni vilja koma alls konar á netið,“ segir Dagbjört Harðardóttir, sérfræðingur hjá Heimili- og skóla.
Mikilvægt sé að foreldrar setjist niður með börnum sínum og ræði opinskátt við þau um afleiðingar ofbeldis. Undirstrika þurfi að um lögbrot sé að ræða.
„Og nýta þessa hversdagslegu hluti í samtöl. Þetta kemur í fréttunum, þetta er á miðlunum. Að taka þá umræðuna, hvort sem það er við matarborðið eða annars staðar.“
Hún segir að mögulega haldi ungmenni sem taki þátt í ofbeldi tengdu tálbeituaðferðum að þau séu að gera eitthvað jákvætt, afstýra mögulegum glæp.
„Sem bara er alls ekki raunin. Þetta er mjög hættulegt og þetta er lögbrot líka og það á ekki að gera neitt annað, ef maður fréttir af einhverju svona, en að hafa samband við lögregluna.“