Ný stjórn Heimilis og skóla: foreldrar fái sterkari rödd í samfélagsumræðunni
Sigvaldi Egill Lárusson hefur tekið við sem formaður Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra, ásamt nýrri stjórn. Nýja stjórnin boðar breyttar áherslur þar sem samtökin verða öflugri talsmaður foreldra í opinberri umræðu um menntun og velferð barna.
Á aðalfundi Heimilis og skóla, sem haldinn var laugardaginn, 30. Mai 2026, var Sigvaldi Egill Lárusson kjörinn formaður samtakanna. Með honum tekur sæti ný stjórn sem hyggst efla rödd foreldra á sviði menntamála og barnamála í íslensku samfélagi.
„Foreldrar eru stærsti einstaki hagsmunahópurinn í menntakerfinu, en rödd þeirra hefur ekki alltaf heyrst nógu skýrt í samfélagsumræðunni," segir Sigvaldi. „Við viljum breyta því. Heimili og skóli á að vera öflugur og sýnilegur talsmaður foreldra þegar teknar eru ákvarðanir sem snerta börnin þeirra, hvort sem það varðar námsmat, líðan í skóla, stafrænt umhverfi eða önnur stór mál."
Umræðan um menntamál hefur verið afar fyrirferðarmikil síðustu árin allt frá samræmdu námsmati til líðan barna og stafræns umhverfis. Í þeirri umræðu hefur hins vegar oft vantað sjónarhorn foreldra. Nýja stjórnin hyggst breyta því og tryggja að rödd foreldra heyrist skýrt þegar fjallað er um mál sem snerta börnin þeirra.
Sigvaldi Egill tekur við keflinu af Jóhanni Gunnarssyni og hlakkar til að vinna með nýrri stjórn að þessum áherslum á komandi starfsári.
Ný stjórn Heimilis og skóla
Á aðalfundinum voru eftirtalin kjörin í stjórn samtakanna ásamt Sigvaldi Agli Lárussyni, formanni:
Hermann Arnar Austmar
Karen Kristine Pye
Stefán Karl Snorrason
Fyrir í stjórn sitja áfram:
Héðinn Svarfdal Björnsson
Kristín Ólöf Grétarsdóttir
Salka Hauksdóttir
Varamenn:
Atli Þór Jóhannsson
Dagný Hróbjartsdóttir
Kristófer Nökkvi Sigurðsson
Stefán Þór Helgason
Um Heimili og skóla
Heimili og skóli – landssamtök foreldra voru stofnuð árið 1992 og hafa það að markmiði að stuðla að bættum aðstæðum til menntunar og uppeldis barna og ungmenna, efla gott samstarf heimila og skóla og vera málsvari foreldra og barna. Á síðustu árum hafa samtökin verið að vinna að innleiðingu Farsældarsáttmála Heimilis og skóla með vinnustofum fyrir foreldra um land allt. Farsældarsáttmálinn gefur foreldrum tækifæri til þess að forma samstarf sín á milli, styrkja foreldrastarfið og hlutverk foreldra sem lykilaðila í að skapa farsælt samfélag.